Fjarþjálfun
Netþjálfunin inniheldur tvo 30 mínútna tíma á viku. Annar tíminn er barretími, með meiri áherslu á standandi æfingar og handleggi, og hinn pilatestími, þar sem áhersla er lögð á miðjuna og æfingar á dýnu. Tímana er hægt er að taka hvenær og hvar sem er, og hægt að nýta eins oft og hver vill.
Þar að auki koma inn styttri teygjutímar, og/eða tímar sem leggja áherslu á ákveðna vinnu, svo sem kvið, bak, o.s.frv. Þeir tímar eru að jafnaði 10-15 mínútur.
Auk þess verða vikulegir póstar og ítarefni!
Gott er að eiga eftirfarandi búnað fyrir tímana, en ekki nauðsyn!
Létt handlóð (1, 1.5 eða 2 kg)
Lítinn pilatesbolta
Jógadýnu
Fjarþjálfunin hefst 1. júní og er í 4 vikur. Efnið er síðan aðgengilegt í 1 viku eftir að tímabili lýkur ef þið kjósið ekki áframhald. Einnig er aðgangur að fjögurra vikna prógrami frá því í febrúar sl.